30.07.26 - 14:44
Elvar Geir Magnússon
Ekki minnst á kvennafótbolta í áætlunum FIFA

Shakira og Gianni Infantino.

Mynd: EPA

Infantino í góðum félagsskap.

Mynd: EPA

Shakira og Gianni Infantino.

Mynd: EPA
Áætlanir Gianni Infantino, forseta FIFA, um að hleypa fjárfestum að HM í fótbolta og fleiri innviðum sambandsins hafa hlotið gríðarlega harkaleg viðbrögð og mikla gagnrýni.
Guardian hefur undir höndum 25 blaðsíðna kynningu á áætlun FIFA um stofnun á viðskiptatengdu dótturfélagi til að sjá um helstu viðburði og að utanaðkomandi fjárfestar geti keypt hlut í félaginu.
Áætlað er að 20% verði selt til Joshua Kushner sem er bróðir tengdasonar Donald Trump. Útboðslýsingin hefur verið unnin af JP Morgan, bandaríska bankanum sem stóð einnig að hinni misheppnuðu tilraun til að stofna evrópska ofurdeild fyrir fimm árum.

TENGT EFNI
Infantino tilkynnir KSÍ að sambandið fái yfir fimm milljarða styðji það áform sín
Í kynningu FIFA, sem er hönnuð til að fá aðildarsamtök til að samþykkja sölu á viðskiptaréttindum heimsmeistaramótsins, kemur skýrt fram að áformað er að halda fleiri mót, hækka miðaverð og nýta lántökur til fjármögnunar.
Í þessari 25 blaðsíðna kynningu er ekki minnst orði á kvennafótbolta og hefur Guardian óskað eftir viðbrögðum frá FIFA.