Fotbolti.net
30.07.26 - 07:00
Víðir Sigurðsson

Víðir Sig: Guðmundur skoraði 100. markið

Guðmundur Magnússon og Tomasz Luba, þjálfari Víkings í Ólafsvík.

Guðmundur Magnússon og Tomasz Luba, þjálfari Víkings í Ólafsvík.

Canon

Mynd: Víkingur Ólafsvík

Guðmundur Magnússon, sóknarmaðurinn reyndi sem lengst af hefur leikið með Fram og var fyrirliði liðsins til skamms tíma, náði í gærkvöld þeim sjaldgæfa áfanga að skora sitt 100. mark í íslensku deildakeppninni.

Guðmundur skoraði tímamótamarkið fyrir Víking í Ólafsvík þegar hann jafnaði metin í 2-2 í viðureign Ólsara gegn Fjölni í 2. deildinni á Ólafsvíkurvelli en Guðmundur kom til liðs við þá í þriðja skipti á meistaraflokksferlinum fyrr í þessum mánuði eftir að hafa leikið með Njarðvík í 1. deildinni fyrri hluta tímabilsins.

Með þessu marki hefur hann jafnframt skorað fyrir Ólafsvíkinga í þremur efstu deildum Íslandsmótsins en hann lék með þeim í úrvalsdeildinni á fyrsta ári þeirra þar árið 2013, ásamt því að spila með Víkingunum í 1. deildinni á þremur öðrum tímabilum.

Guðmundur er 56. leikmaðurinn sem nær að skora 100 mörk samanlagt í öllum deildum frá því Íslandsmótið hófst árið 1912 og er sá fyrsti sem nær þeim áfanga á þessu ári. Átta af þessum 56 hafa tekið þátt í leikjum á Íslandsmótinu í ár og allir hafa skorað, nema sá markahæsti af þeim, Patrick Pedersen, enda er hann nýbyrjaður að spila aftur með Val eftir langa fjarveru vegna meiðsla.

Fimmtán leikmenn hafa skorað fleiri mörk en Patrick Pedersen og fjórir þeirra hafa skorað meira en 200 mörk. Þessir fjórir eru markahæstir í sögunni:
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.