Fotbolti.net
29.07.26 - 15:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Slagsmál og nefbrot á æfingu Keflavíkur

Slagsmál og nefbrot á æfingu Keflavíkur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það sauð upp úr á æfingu Keflavíkur í fyrradag með þeim afleiðingum að leikmaður liðsins nefbrotnaði. Tveimur leikmönnum lenti saman og fóru högg á milli manna.

„Það var hörkuæfing og eins og oft gerist á æfingum þá voru menn að takast á. Það fór kannski lengra en manni þykir þægilegt. Þetta var hiti á æfingu sem kom upp og verður leyst innan félagsins," segir Jónas Guðni Sævarsson sem er yfirmaður fótboltamála í Keflavík.
Fótbolti.net heyrði af því að tveir erlendir leikmenn hefðu átt í hlut. Vill Jónas segja hverjir áttu í hlut?

„Nei."

Það heyrðist af því að annar leikmaðurinn hefði nefbrotnað, er það rétt?

„Það er rétt."

Er alveg ljóst að það verða einhverjar afleiðingar af þessu?

„Klárlega. Báðir aðilar mæta ekki á æfingu þangað til við erum búnir að leysa úr þessu. Við þurfum að setjast niður með þeim og fara yfir málin varðandi áframhaldið."

Myndir þú halda að annar eða jafnvel báðir gætu yfirgefið félagið?

„Nei, ég held þetta sé nú ekki svoleiðis. Eins og oft gerist á æfingum þá lenda menn saman, það var bara óheppilegt að þetta hafi endað með þessum afleiðingum. Ég hef trú á því að menn nái að sættast, þeir eru liðsfélagar, ég vona að menn geti lagt þetta að baki sér og haldið áfram," segir Jónas.

Er eitthvað vitað hvað varð til þess að sauð upp úr?

„Nei, þetta var bara hiti á æfingu, verið að toga og svo er tækling. Menn eru ósáttir við eitthvað í þeim aðdraganda sem veldur því að þetta högg kemur og nefið brotnar, óheppilegt hvað það varðar. Ég á ekki von á öðru en að leikmennirnir og þjálfarateymið tækli þetta sín á milli og að við getum haldið áfram."

Næsti leikur Keflavíkur verður gegn KA á heimavelli eftir viku.
Jónas Guðni með yfirsýn, á myndinni er einnig aðstoðarþjálfarinn Hólmar Örn Rúnarsson, standandi.

Jónas Guðni með yfirsýn, á myndinni er einnig aðstoðarþjálfarinn Hólmar Örn Rúnarsson, standandi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slagsmál og nefbrot á æfingu Keflavíkur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.