Elmar Atli: Við hefðum viljað klárað þetta

Elmar Atli fyrirliði Vestra

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elmar Atli fyrirliði Vestra

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Evrópuævintýri Vestra lauk fyrr í kvöld eftir 1-1 jafntefli við RFS í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Leikurinn fór fram á Avis-vellinum í Laugardal, Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Elmar Atla fyrirliða Vestra eftir leik.
„Við hefðum viljað klárað þetta fyrst að við komust yfir í honum. Það var leiðinlegt að fá þetta mark á sig svona stuttu eftir okkar mark en þeir gerðu þetta hrikalega vel. Það var allt annar bragur á okkur í dag heldur en úti. Við fengum loksins viku á milli leikja, það sást á okkur að við vorum ferskari og léttari á okkur". Sagði Elmar Atli eftir leik.
Mörkin tvö í leik dagsins komu á 5 mínútna kafla og eftir það var leikurinn nokkuð lokaður og lítið var um stór færi, var það eftir plani að halda þessu lokuðu?
„Nei við ætluðum að reyna að keyra aðeins á þá í dag en þeir gerðu þetta bara vel og lokuðu á það sem við vorum að gera. Þetta er drullu gott lið og reynslu mikið. Þeir gera sína hluti vel þegar við reyndum að keyra á þá".
Evrópuævintýrið er á enda ef tvö einvígi gegn Qarabag og RFS, en hvað er hægt að taka gott úr þessum leikjum?
„Þetta er bara risa stórt, við erum að gera þetta í fyrsta skipti. Mér finnst við ættum að taka það úr þessu að hafa fengið að prufa þetta með Vestra, það er risa stórt dæmi. Ég mun búa á þessu allt mitt líf".
Vestri hafa átt erfitt uppdráttar í deildarleikjunum á milli Evrópuleikja, þeir eiga leik gegn Gróttu strax á mánudaginn. Nú eru Evrópuleikirnir liðnir, sérðu fyrir þér að þið farið aftur á sigurbraut?
„Já núna verðum við að setja þetta í baksýnisspegilinn, þetta er búið í bili, við þurfum aðeins að girða okkur í brók í deildinni og það byrjar á mánudaginn".
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.
