30.08.17 - 17:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Benedikt Höwedes til Juventus (Staðfest)

Höwedes hefur allan sinn feril spilað með Schalke.

Mynd: Getty Images

Höwedes hefur allan sinn feril spilað með Schalke.

Mynd: Getty Images
Ítalíumeistarar Juventus hafa fengið þýska varnarjaxlinn Benedikt Höwedes á láni frá Schalke 04.
Juventus missti Leonardo Bonucci til AC Milan fyrr í sumar og Höwedes kemur inn til að auka breiddina í vörninni.
Juventus missti Leonardo Bonucci til AC Milan fyrr í sumar og Höwedes kemur inn til að auka breiddina í vörninni.
Hann kemur til Tórínó á lánssamningi út þetta tímabil. Juventus borga Schalke 3 milljónir evra fyrir það að fá Howedes á láni. Ef hann spilar 25 leiki á tímabilnu þá þarf Juventus að borga 13 milljónir evra til viðbótar og leikmaðurinn verður þá samningsbundinn til 2020.
Höwedes er uppalinn hjá Schalke og hefur allan sinn feril spilað með þýska félaginu. Hann hefur spilað meira en 300 leiki fyrir félagið.
Hann ætlar núna að prófa eitthvað nýtt. Hann er farinn til Ítalíu!

OFFICIAL: Welcome to Juventus @BeneHoewedes!
— JuventusFC (@juventusfcen) August 30, 2017
👉 https://t.co/JvPO0iA3VS#WillkommenBenedikt #ForzaJuve pic.twitter.com/2mimfw1Tsa