Fotbolti.net
30.08.17 - 17:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Dýrlingarnir lána Clasie til Club Brugge (Staðfest)

Clasie er farinn frá Southampton.

Clasie er farinn frá Southampton.

Canon

Mynd: Getty Images

Southampton hefur staðfest það að miðjumaðurinn Jordy Clasie hafi yfirgefið herbúðir félagsins og sé farinn til Belgíu á láni.

Hann mun leika með Club Brugge út þetta tímabil.
„Við erum með marga sterka miðjumenn hérna hjá Southampton og það er mikil samkeppni um sæti í liðinu,\" sagði Les Reed, yfirmaður knattspyrnumála hjá dýrlingunum.

„Við teljum að það sé gott fyrir Jordie að spila byrjunarliðsbolta næstu mánuðina. Hann fær að gera það í sterku liði Club Brugge.\"

Clasie kom til Southampton fyrir tveimur árum, frá Feyenoord í Hollandi. Hann spilaði 22 leiki í ensku úrvalsdeildinni á sínu fyrsta tímabili og á síðasta tímabili kom hann við sögu í 16 leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.