Fotbolti.net
30.08.17 - 21:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jeremy Toljan til Dortmund (Staðfest)

Toljan hefur yfirgefið herbúðir Hoffenheim.

Toljan hefur yfirgefið herbúðir Hoffenheim.

Canon

Mynd: Getty Images

Borussia Dortmund hefur fest kaup á bakverðinum Jeremy Toljan frá Hoffenheim. Toljan krotaði undir fimm ára samning við Dortmund.

Hinn 23 ára gamli Toljan hefur verið orðaður við Tottenham í sumar. Þeir höfðu áhuga á því að fá hann til að fylla skarð Kyle Walker, en svo virðist sem Spurs sé að landa Serge Aurier frá PSG.
„Hann er leikmaður sem getur náð langt,\" sagði Michael Zorc, íþróttastjóri Dortmund, eftir að kaupin voru staðfest.

Toljan er fjölhæfur. Hann getur spilað sem bæði vinstri og hægri bakvörður, en það er eitthvað sem mörg lið leitast eftir.

Felix Passlack, 19 ára gamall leikmaður Dortmund, hefur verið lánaður til Hoffenheim í staðinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.