30.08.17 - 15:07
Magnús Már Einarsson
Juan Foyth til Tottenham (Staðfest)

Sáttur með samninginn.

Mynd: Twitter

Sáttur með samninginn.

Mynd: Twitter
Tottenham hefur keypt varnarmanninn Juan Foyth frá Estudiantes í Argentínu á átta milljónir punda.
Juan er 19 ára gamall en hann þykir vera einn efnilegasti varnarmaður í heimi.
Hann skrifaði undir fimm ára samning við Tottenham.
Tottenham hefur verið á eftir Juan í allt sumar. Samningaviðræður virtust hafa siglt í strand á tímabili en á endanum gengu skiptin í gegn.

Fleiri fréttir eru væntanlegar frá Tottenham á næstu klukkutímunum en hægri bakvörðurinn Serge Aurier er að koma til félagsins frá PSG á 23 milljónir punda.