30.08.17 - 17:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Krychowiak kominn til West Brom (Staðfest)

Mynd: West Brom

Mynd: West Brom
West Brom var að næla í sinn annan leikmann í dag.
Bakvörðurinn Kieran Gibbs kom frá Arsenal fyrr í dag og nú hefur félagið fengið Grzegorz Krychowiak frá Paris Saint-Germain.
Krychowiak kemur á láni frá Parísarliðinu.

Hann hefur ákveðið að spila með West Brom á þessu tímabili þrátt fyrir að hafa fengið mörg önnur tilboð.
„Ég var með mörg tilboð frá Spáni og Ítalíu. En þetta er metnaðarfullt félag,\" sagði hann eftir staðfestingu á skiptunum.
Krychowiak samdi við PSG síðasta sumar eftir að hafa slegið í gegn með Sevilla. Hann fann ekki taktinn í París og spilaði lítið. Unai Emery, stjóri PSG, fann ekki pláss fyrir hann í plönum sínum og því hefur hann verið lánaður til West Brom út tímabilið.

Come on guys... you know who I am joining! ➡ #WBA 😆
— Grzegorz Krychowiak (@GrzegKrychowiak) August 30, 2017