Fotbolti.net
30.08.17 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Norwich kaupir Hanley frá Newcastle (Staðfest)

Grant Hanley.

Grant Hanley.

Canon

Mynd: Getty Images

Norwich hefur keypt varnarmanninn Grant Hanley í sínar raðir frá Newcastle.

Hanley ólst upp hjá Blackburn en hann gekk til liðs við Newcastle í fyrrasumar.
Hanley lék einungis sextán leiki með Newcastle í öllum keppnum á síðasta tímabili og hann var ekki inni í myndinni fyrir komandi tímabil.

Þessi 25 ára gamli leikmaður hefur nú skrifað undir fjögurra ára samning hjá Norwich.

Árið 2012 komst Hanley í tvífara vikunnar hér á Fótbolta.net en hann þykir vera líkur skemmtikraftinum Magga Mix.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.