Fotbolti.net
30.08.17 - 06:00
Þórarinn Jónas Ásgeirsson

Sone Aluko til Reading (Staðfest)

Sone Aluko er kominn til Jón Daða og félaga í Reading

Sone Aluko er kominn til Jón Daða og félaga í Reading

Canon

Mynd: Getty Images

Reading tilkynnti í gær að þeir hefði klófest framherjann, Sone Aluko, frá Fulham. Aluko skrifaði undir fjögurra ára samning við Reading en kaupverðið var óuppgefið.

Aluko kom til Fulham síðasta sumar og spilaði hann 44 deildarleiki fyrir Fulham á síðustu leiktíð og skoraði í þeim 8 mörk.

Reading hefur nú fengið Aluko til sín og mun hann berjast við Jón Daða Böðvarsson um framherjastöðuna hjá Reading.

Aluko hefur komið víða við á sínum ferli en hann hóf feril sinn hjá Birmingham. Þaðan var hann lánaður bæði til Aberdeen og Blackpool áður en hann skipti svo alveg yfir til Aberdeen árið 2008.

Frá Aberdeen lá leiðin til Rangers þar sem hann lék aðeins eitt tímabil, 2011-2012. Hann gekk svo í raðir Hull og spilaði með þeim meðal annars í ensku úrvalsdeildinni árið 2014-2015.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.