Fotbolti.net
30.08.19 - 20:23
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Arftaki Alisson lánaður til Cagliari (Staðfest)

Arftaki Alisson lánaður til Cagliari (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Cagliari er búið að staðfesta komu Robin Olsen og Luca Pellegrini sem munu leika fyrir félagið á lánssamningi út tímabilið.
Cagliari hefur verið að styrkja hópinn mikið í sumar en fyrr í ágúst var staðfest komu Marko Rog, Radja Nainggolan og Nahitan Nandez.

Olsen kemur að láni frá Roma. Hann var keyptur síðasta sumar sem arftaki Alisson Becker en frammistöður hans í Serie A voru langt frá því að vera nægilega góðar. Olsen er 29 ára og á 31 landsleik að baki fyrir Svíþjóð.

Hann skiptir yfir til að fá aukinn spiltíma. Hann vill sanna sig með Cagliari og tryggja byrjunarliðssæti sitt hjá sænska landsliðinu fyrir Evrópumótið á næsta ári.

Olsen mun hitta Pellegrini sem var með honum hjá Roma í fyrra en var seldur yfir til Juventus í sumar. Pellegrini er tvítugur bakvörður og var hjá Cagliari að láni á síðustu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.