30.08.19 - 18:17
Ívan Guðjón Baldursson
Chris Smalling til Roma (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Roma hefur tryggt sér varnarmanninn Chris Smalling að láni út tímabilið frá Manchester United.
Smalling, sem verður þrítugur í nóvember, hefur spilað 323 leiki fyrir Man Utd frá komu sinni sumarið 2010.
Smalling lék 34 leiki fyrir Rauðu djöflana á síðustu leiktíð en er einn af sex miðvörðum félagsins og ákvað Ole Gunnar Solskjær að lána hann út.
„Við erum með sex miðverði og Chris líst vel á að reyna fyrir sér með Roma. Hann mun koma sterkari til baka því þetta er stórt félag sem spilar í sterkri deild," sagði Solskjær um skiptin.
Hjá Roma mun Smalling berjast við Juan Jesus, Federico Fazio og Gianluca Mancini um byrjunarliðssæti.
Roma greiðir 3 milljónir evra fyrir lánið.

🏴💯 Official: Chris Smalling has joined Roma on loan 💪
— AS Roma English (@ASRomaEN) August 30, 2019
This summer #ASRoma is using transfer announcements to help support charities like @MissingKids and @missingpeople in the search for missing children around the world. pic.twitter.com/xSGZWehhVE