Fotbolti.net
30.08.19 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Defrel aftur til Sassuolo (Staðfest)

Defrel aftur til Sassuolo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sassuolo er búið að krækja í franska framherjann Gregoire Defrel frá Roma. Defrel gerði garðinn frægan með Sassuolo áður en Roma keypti hann fyrir 20 milljónir evra sumarið 2017.
Hann náði aldrei að festa sig í sessi í höfuðborginni og var lánaður til Sampdoria á síðustu leiktíð, þar sem hann skoraði 12 mörk í 39 leikjum.

Defrel kemur að láni með kaupskyldu sem virkjast ef Sassuolo heldur sér í Serie A á tímabilinu. Félagið greiðir 3 milljónir fyrir lánið og þarf að bæta 9 milljónum við til að kaupa framherjann. 1-2 milljónir munu svo bætast við í aukatengdar greiðslur og Sassuolo greiðir því í heildina tæplega 15 milljónir.

Defrel er 28 ára og gerði 23 mörk í 73 leikjum á tveimur árum hjá Sassuolo. Þar áður var hann leikmaður Cesena.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.