Fotbolti.net
30.08.19 - 18:06
Ívan Guðjón Baldursson

Kevin Mirallas til Antwerp á frjálsri sölu (Staðfest)

Kevin Mirallas til Antwerp á frjálsri sölu (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Belgíska félagið Royal Antwerp FC er búið að staðfesta komu belgíska framherjans Kevin Mirallas.
Mirallas kemur á frjálsri sölu frá Everton og er búinn að skrifa undir samning sem gildir út tímabilið. Hann mun eflaust reynast gríðarlega mikill liðsstyrkur fyrir Antwerp, sem er með níu stig eftir fjórar fyrstu umferðir tímabilsins.

Mirallas verður 32 ára í október eftir sex tímabil með Everton, þar sem hann skoraði 38 mörk í 186 leikjum.

Á síðustu leiktíð var Mirallas lánaður til Fiorentina. Þar spilaði hann flesta leiki en náði sér aldrei á strik.

Mirallas hefur gert 10 mörk í 60 landsleikjum en hefur aðeins komið við sögu í einum leik á síðustu 18 mánuðum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.