Fotbolti.net
30.08.26 - 16:12
Magnús Atlason
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Fram og KA: Eiður Smári ekki á skýrslu

Byrjunarlið Fram og KA: Eiður Smári ekki á skýrslu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Klukkan 17:00 í dag hefst leikur Fram og KA í Úlfarsárdal í 21. umferð Bestu deildarinnar.

Liðin eru á mjög ólíkum stað í töflunni. Fram er í toppbaráttu og situr í þriðja sæti deildarinnar á meðan KA vermir botnsætið.
Lestu um leikinn: Fram 0 - 1 KA
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, virðist hafa verið sáttur við liðið eftir 4-3 útisigurinn gegn Breiðablik í síðustu umferð því hann heldur liðinu óbreyttu. Simon Tibbling snýr aftur í hópinn en Fred og Atli Þór eru áfram fjarri góðu gamni.

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gerir tvær breytingar frá 5-3 tapinu gegn KR. Markús Máni Pétursson og Valdimar Logi Sævarsson koma inn í liðið. Birgir Baldvinsson og Samuel Karl Kroon, sem byrjuðu gegn KR, eru ekki í hóp í dag. Eiður Smári Guðjohnsen, annar aðalþjálfari KA, er ekki skráður á skýrslu í dag en það reyndist vera vegna kerfisgalla á vef KSÍ.

Byrjunarlið Fram
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
5. Kyle McLagan
7. Kristófer Konráðsson
8. Haraldur Einar Ásgrímsson
9. Róbert Hauksson
18. Ægir Jarl Jónasson
19. Kennie Chopart (f)
25. Freyr Sigurðsson
26. Sigurjón Rúnarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic

Byrjunarlið KA
1. Ívar Arnbro Þórhallsson (m)
3. Kári Gautason
6. André Rømer
7. Adam Ægir Pálsson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
21. Mikael Breki Þórðarson
23. Markús Máni Pétursson
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
29. Jakob Snær Árnason
30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
44. Valdimar Logi Sævarsson
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.