Marcelo Bielsa hefur verið atvinnulaus síðan hann var látinn fara frá Leeds í febrúar. Þessi 67 ára gamli Argentínumaður stýrði Leeds í fjögur ár en hann kom liðinu upp í úrvalsdeildina í fyrsta sinn í 16 ár.
Samkvæmt brasilískum fjölmiðlum hefur Santos reynt að ná sambandi við Bielsa en hann svarar ekki.
Santos er sagt vilja ráða hann sem stjóra liðsins og einnig í stöðu yfirmanns fótboltamála hjá félaginu.
Það kemur einnig fram að þrjú ónefnd félög hafa einnig áhuga á að fá Bielsa til sín.
Athugasemdir