30.10.16 - 19:06
Kristófer Kristjánsson
Frans Elvarsson framlengir við Keflavík (Staðfest)

Frans líkar vel í Keflavík

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frans líkar vel í Keflavík

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frans Elvarsson, leikmaður Keflavíkur, hefur skrifað undir nýjan samning sem gildir til ársins 2018.
Einhver óvissa var með framtíð Frans en hann var líka með samningstilboð frá Grindavík og sagði í viðtali við Fótbolti.net á dögunum að hann væri að skoða sína möguleika.
Þessi 26 ára gamli miðjumaður hefur spilað 101 leik fyrir Keflavík í deild og bikar en hann hefur verið á mála hjá þeim síðan 2011.
Í sumar spilaði hann 12 leiki í Inkasso deildinni og skoraði eitt mark. Keflavík endaði tímabilið í þriðja sæti deildarinnar.
Frans er uppalinn hjá Sindra á Höfn í Hornafirði og hefur sömuleiðis leikið með Njarðvík á ferlinum.
Nú er hinsvegar ljóst að hann verður áfram í herbúðum Keflavíkur sem eru farnir að undirbúa sig fyrir Inkasso deildina á næsta ári.