Fotbolti.net
30.10.16 - 06:30
Jóhann Ingi Hafþórsson

Sindri Snær tvö ár í viðbót hjá KR (Staðfest)

Sindri Snær

Sindri Snær

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Sindri Snær Jensson, markmaður KR, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið.

Samningurinn er til tveggja ára en þetta staðfesti hann á Twitter í gærkvöldi.

Sindri var varamarkmaður KR á síðustu leiktíð en Stefán Logi Magnússon spilaði alla leiki KR á tímabilinu á meðan Sindri var honum til halds og trausts.

Hann hefur leikið níu leiki með KR í deild og bikar en hann á einnig leiki með Val, Berserki og Þrótt.

TWO MORE YEARS
Nú rétt fyrir 18:00 í dag undirritaði ég nýjan tveggja ára samning við Stórveldið. pic.twitter.com/KQZnI3iNsE

— Sindri Snær Jensson (@sindrijensson) October 29, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.