Fotbolti.net
30.10.19 - 22:00
Brynjar Ingi Erluson

Sindri Scheving semur við Þrótt R. (Staðfest)

Sindri Scheving í leik með Þrótturum

Sindri Scheving í leik með Þrótturum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Knattspyrnudeild Þróttar R. hefur samið við Sindra Scheving en hann kemur til félagsins frá Víkingi R.
Sindri er 21 árs gamall en hann var á láni hjá Þrótti R. frá Víkingi R í sumar og lék 18 leiki og skoraði 3 mörk í Inkasso-deildinni í sumar.

Hann er nú búinn að semja við Þrótt og mun leika með liðinu á komandi tímabili.

Sindri er uppalinn í Val en hélt til Reading árið 2014. Hann sneri aftur árið 2017 og var sama sumar lánaður í Hauka áður en Víkingur R. fékk hann í byrjun árs 2018.

Þróttur R. bjargaði sér frá falli í Inkasso-deildinni í lokaumferðinni með því að gera markalaust jafntefli við Aftureldingu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.