Fotbolti.net
30.11.12 - 14:07
Hafliði Breiðfjörð

Adam Örn og Daði í NEC Nijmegen (Staðfest)

Adam Örn og Daði í NEC Nijmegen (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða NEC

Adam Örn Arnarson, leikmaður Breiðabliks, og Daði Bergsson, leikmaður Þróttar, hafa gengið til liðs við NEC Nijmegen. Leikmennirnir skrifuðu undir tveggja og hálfs árs samning við hollenska félagið í dag.
Adam og Daði fóru til NEC á reynslu fyrr á árinu þar sem að þeir heilluðu forráðamenn félagsins.

Breiðablik og Þróttur samþykktu tilboð NEC í leikmennina fyrr í mánuðinum en þeir munu flytja til Hollands í janúar.

Adam og Daði eru báðir fæddir árið 1995 en þeir hafa leikið með U17 og U19 ára landsliði Íslands.

Daði lék einnig fimmtán leiki með Þrótti í fyrstu deildinni í sumar og níu leiki í fyrra.

NEC Nijmegen er í sjöunda sæti í hollensku úrvalsdeildinni en með liðinu leikur Guðlaugur Victor Pálsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.