Fotbolti.net
30.11.12 - 14:27
Magnús Már Einarsson

Björgólfur Takefusa í Val (Staðfest)

Björgólfur ásamt Magnúsi Gylfasyni þjálfara Vals við undirskriftina í dag.

Björgólfur ásamt Magnúsi Gylfasyni þjálfara Vals við undirskriftina í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur hefur fengið framherjann Björgólf Takefusa í sínar raðir frá Víkingi R. en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið nú rétt í þessu.

Í vikunni fengu bæði Valur og Fylkir leyfi til að ræða við Björgólf en hann hefur nú gengið til liðs við Hlíðarendafélagið.
Björgólfur er 32 ára gamall en hann hefur skorað 111 mörk í 223 deildar og bikarleikjum hér á landi á ferli sínum.

Björgólfur er sjötti leikmaðurinn sem Valur fær í sínar raðir síðan Magnús Gylfason tók við þjálfun liðsins í haust.

Arnar Sveinn Geirsson, Edvard Börkur Óttharsson, Fjalar Þorgeirsson, Ingólfur Sigurðsson og Sigurður Egill Lárusson hafa einnig gengið til liðs við félagið.

Viðtal við Björgólf mun birtast á Fótbolta.net síðar í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.