Fotbolti.net
30.11.12 - 17:15
Magnús Már Einarsson

Björn Hákon í KF (Staðfest)

Björn Hákon í KF (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Markvörðurinn Björn Hákon Sveinsson mun leika með Knattspyrnufélagi Fjallabyggðar næsta sumar en hann greindi frá þessu á Twitter síðu sinni í dag.

KF komst upp í fyrstu deildina í haust og félagið hefur nú samið við Björn Hákon sem hefur undanfarið búið í Noregi.
,,Fjallabyggð verður það í sumar heillin mín. Hlakka mikið til að spila fyrir LOS aftur! #legend #comeback #fótbolti,\" sagði Björn Hákon á Twitter í dag.

Björn Hákon er uppalinn hjá Völsungi en hann lék með Þór frá 2009-2011. Hluta af þeim tíma spilaði Björn undir stjórn Lárusar Orra Sigurðssonar sem er í dag þjálfari KF.

Síðan haustið 2011 hefur þessi 28 ára gamli leikmaður síðan dvalið í Noregi þar sem hann hefur verið í námi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.