30.11.16 - 07:00
Arnar Geir Halldórsson
Hafþór Mar í Völsung (Staðfest)

Heima er best

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heima er best

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hafþór Mar Aðalgeirsson hefur gert félagaskipti úr Inkasso-deildarliði Fram yfir í 2.deildarliðið Völsung.
Hafþór Mar þekkir vel til á Húsavík enda er Völsungur hans uppeldisfélag og lék Hafþór með liðinu í fjögur ár áður en hann færði sig um set til Fram árið 2014.
Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá Hafþóri undanfarin ár og lék hann aðeins tvo leiki með Fram í Inkasso-deildinni síðasta sumar.
Hafþór Mar er 22 ára og hefur alls leikið 93 leiki í deild og bikar með Völsungi, Fram og Selfoss en hann var á láni hjá Selfyssingum sumarið 2014. Í þessum 93 leikjum hefur hann skorað 24 mörk.
Völsungur endaði í 9.sæti 2.deildarinnar á síðustu leiktíð en liðið tryggði sæti sitt á ævintýralegan hátt í næstsíðustu umferðinni. Þjálfaraskipti urðu hjá Húsvíkingum eftir tímabilið þegar Jóhann Kristinn Gunnarsson tók við liðinu af Páli Viðari Gíslasyni.