Fotbolti.net
30.11.16 - 18:00
Elvar Geir Magnússon

Njarðvík bætir þremur við sig (Staðfest)

Atli, Bergþór og Sigurður.

Atli, Bergþór og Sigurður.

Canon

Mynd: Njarðvík

2. deildarlið Njarðvíkur hefur fengið til sín þrjá leikmenn. Það eru þeir Atli Freyr Ottesen Pálsson, Bergþór Ingi Smárason og Sigurður Þór Hallgrímsson.
Atli er 21 árs sóknarleikmaður og er uppalinn í Stjörnunni. Hann kom við sögu i átta leikjum í Pepsi-deildinni þegar Stjarnan varð Íslandsmeistari 2014. Í sumar var hann í láni hjá Leikni R og KV.

Bergþór og Sigurður eru báðir fæddur 1994 og þekkja vel til hjá Njarðvík. Bergþór á að baki með 50 leiki með Njarðvík en hann skipti yfir í Reyni Sandgerði síðasta sumar þar sem hann lék 10 leiki og gerði 3 mörk.

Sigurður Þór er uppalinn Keflvíkingur sem lék með Njarðvík í 2. flokki en skipti yfir í Víði þar sem hann á að baki 38 leiki og 2 mörk.

Njarðvík hafnaði í áttunda sæti 2. deildarinnar í sumar.

Heimild: Njarðvík

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.