Fotbolti.net
30.11.16 - 15:08
Magnús Már Einarsson

Southgate ráðinn þjálfari enska landsliðsins (Staðfest)

Wayne Rooney og Gareth Southgate.

Wayne Rooney og Gareth Southgate.

Canon

Mynd: Getty Images

Gareth Southgate hefur formlega verið ráðinn þjálfari enska landsliðsins.

Southgate hefur skrifað undir fjögurra ára samning við enska knattspyrnusambandið en talið er að hann fái tvær milljónir punda í árslaun.

Hinn 46 ára gamli Southgate var áður þjálfari enska U21 árs landsliðsins en hann tók við A-landsliðinu í september þegar Sam Allardyce hætti í kjölfarið á hneykslismáli.

Southgate hefur stýrt Englendingum í síðustu fjórum leikjum en tveir af þeim unnust og tveir enduðu með jafntefli.

Á sínum tíma spilaði Southgate lengi með Crystal Palace, Aston Villa, Middlesbrough auk þess sem hann lék 57 landsleiki með Englendingum. Hann var stjóri Middlesbrough í þrjú ár áður en hann tók við enska U21 árs landsliðinu árið 2013.

📰 @GarethSouthgate has been appointed as the new #ThreeLions manager. pic.twitter.com/i7bcKTFVm7

— England (@England) November 30, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.