Fotbolti.net
30.11.17 - 16:54
Elvar Geir Magnússon

Kristófer Páll í Selfoss (Staðfest)

Kristófer Páll í Selfoss (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfoss hefur samið við sóknarmanninn Kristófer Pál Viðarsson, en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.
Kristófer, sem er tvítugur, kemur til Selfoss frá Víkingi Reykjavík en hann er uppalinn hjá Leikni Fáskrúðsfirði og hefur leikið 33 leiki fyrir Leikni í Inkasso-deildinni og skorað í þeim tólf mörk.

Í sumar skoraði hann tvö mörk í ellefu leikjum fyrir Fáskráðsfirðinga en liðið féll niður í 2. deild. Hann hóf tímabilið hjá Fylki en lék aðeins einn leik fyrir félagið áður en hann hélt aftur í Leikni.

„Kristófer Páll er fjölhæfur leikmaður sem við höfum fylgst með í langan tíma. Hann hefur spilað lengi í meistaraflokki þrátt fyrir að vera aðeins tvítugur og sýnt að það býr mikið í honum. Kristófer hefur verið óheppinn með meiðsli að undanförnu en við höfum mikla trú á því að hann geti náð sér á strik á Selfossi og gert mikið fyrir liðið okkar,\" segir Gunnar Borgþórsson, þjálfari karlaliðs Selfoss.

Selfoss hafnaði í 8. sæti Inkasso-deildarinnar á liðnu tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.