30.11.18 - 17:51
Magnús Már Einarsson
Almarr, Andri, Haukur og Alexander í KA (Staðfest)

Haukur Heiðar er kominn aftur til KA. Hér fagnar hann marki með liðinu á sínum tíma.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Almarr er kominn aftur í KA eftir ár í Grafarvogi.

KA kynnti fjóra nýja leikmenn til sögunnar í KA heimilinu nú rétt í þessu. Almarr Ormarsson, Andri Fannar Stefánsson og Haukur Heiðar Hauksson eru allir komnir til félagsins á nýjan leik en þeir eru allir uppaldir hjá KA.
Alexander Groven hefur einnig gengið til liðs við KA en hann er Norðmaður sem getur spilað bæði sem kantmaður og bakvörður vinstra megin.

„Við vildum fá fleiri KA stráka í hópinn hjá okkur. Síðustu daga og vikur höfum við verið að rembast mikið við að fá þessa stráka heim. Síðasta dæmið gekk upp klukkan þrjú í dag þegar við náðum samkomulagi við Val. Við reyndum við annan KA mann en það gekk því miður ekki. Hann (Ævar Ingi Jóhannesson) verður áfram í Garðabænum," sagði Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA.
Hinn 27 ára gamli Haukur Heiðar fór frá KA eftir tímabilið 2011 þegar hann gekk til liðs við KR. Undanfarin fjögur ár hefur Haukur verið hjá AIK en hann varð sænskur meistari með liðinu í ár.
Haukur á sjö landsleiki að baki en hann var í íslenska landsliðshópnum á EM 2016. Haukur var hægri bakvörður framan af meistaraflokksferlinum en síðar spilaði hann sem miðvörður í þriggja manna vörn hjá AIK.
Almarr er þrítugur miðjumaður en hann kemur til KA eftir eitt ár hjá Fjölni. Samningur Almarrs hjá Fjölni datt úr gildi eftir fall úr Pepsi-deildinni í haust. Almarr fór frá KA til Fram árið 2008. Hann lék síðar með KR áður en hann fór aftur til KA fyrir sumarið 2016. Almarr lék með KA 2016 og 2017 en síðan fór hann í Fjölni fyrir síðasta tímabil.
Andri Fannar er líkt og Haukur Heiðar 27 ára gamall. Andri kemur til KA frá Íslandsmeisturum Vals en hann hefur verið á mála þar síðan 2011. Andri Fannar hefur bæði spilað sem miðjumaður og hægri bakvörður á ferlinum.
Alexander Groven skrifaði undir tveggja ára samning við KA. Hinn 26 ára gamli Alexander kemur frá Sarpsborg þar sem hann hefur spilað undanfarin ár. Hann á 93 leiki að baki í norsku úrvalsdeildinni og 39 leiki með yngri landsliðum Noregs. Alexander kemur til Íslands í janúar.
Enski varnarmaðurinn Callum Williams hefur einnig framlengt samning sinn við KA á síðasta tímabili.
„Þetta leit ekki vel út á tímabili. Hann var á leiðinni heim en okkur tókst að sannfæra hann um að taka annað tímabil og hann kemur eftir áramót," sagði Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA.
KA hefur auk þessara leikmanna fengið Guðjón Pétur Lýðsson til liðs við sig frá Val fyrir næsta tímabil í Pepsi-deildinni. KA endaði í 7. sæti í Pepsi-deildinni á síðasta tímabili en Óli Stefán Flóventsson tók við þjálfun liðsins af Srdjan Tufegdzic í haust.

Andri Fannar í leik með KA árið 2010.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Callum Williams.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Alexander Groven

Mynd: Getty Images