Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   lau 30. nóvember 2019 15:01
Aksentije Milisic
Jordan Damachoua í Kórdrengi (Staðfest)
Mynd: Kórdrengir
Kórdrengir halda áfram að styrkja leikmannahóp sinn fyrir baráttuna í 2.deildinni næsta sumar. Nú hafa þeir fengið Jordan Damachoua til liðsins.

Jordan hefur spilað síðustu tvö sumur með KF í 3.deildinni. Sumarið 2018 var hann valinn besti leikmaður liðsins og í sumar hjálpaði hann liðinu að komast upp í 2.deildina en KF lenti í 2.sæti deildarinnar og Kórdrengir í því fyrsta.

Af Facebook síðu Kórdrengja
Varnarmaðurinn sterki Jordan Damachoua er genginn til liðs við Kórdrengja. Damak eins og hann vill láta kalla sig hefur spilað tvö síðustu ár með KF við góðan orðstír og var einn sterkasti leikmaður 3. deildarinnar í sumar. Hann var einnig valinn besti leikmaður KF fyrir tímabilið í fyrra.
Damak er einnig landsliðsmaður Central Africa og á fjölda leikja í 3. deild Frakklands.

Kórdrengir eru gríðarlega ánægðir með að fá Damak í sínar raðir og er hann mikill styrkur fyrir komandi átök!
Athugasemdir
banner
banner
banner