Genoa 1 - 2 Parma
0-1 Gervinho('10)
0-2 Gervinho('47)
1-2 Eldor Shomurodov('50)
0-1 Gervinho('10)
0-2 Gervinho('47)
1-2 Eldor Shomurodov('50)
Gervinho, fyrrum leikmaður Arsenal og Roma, var í essinu sínu í kvöld er Parma mætti Genoa í Serie A á Ítalíu.
Gervinho hefur reynst frábær fengur fyrir Parma en hann stoppaði við í Kína áður en hann hélt aftur í ítölsku úrvalsdeildina.
Sóknarmaðurinn reyndist hetja Parma í kvöld sem mætti Genoa á útivelli og skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri.
Eldor Shomurodov gerði eina mark Genoa á 50. mínútu en það reyndist ekki nóg fyrir heimamenn.
Parma lyfti sér upp í 16. sæti deildarinnar með sigrinum en Genoa er enn í fallsæti, þremur stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir