Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 30. nóvember 2020 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Segja Hulk vera búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Shanghai
Mynd: Getty Images
Kínverskir fjölmiðlar segja að brasilíski kantmaðurinn Hulk sé líklegast á leið burt frá Shanghai SIPG í kínverska boltanum.

Hinn 34 ára gamli Hulk verður samningslaus um áramótin og verður því falur á frjálsri sölu.

Hulk er sagður hafa lent í rifrildum við Vitor Pereira, þjálfara Shanghai. Fjölmiðlar í Kína segja hann vera hættan að mæta á æfingar og liðsfundi.

Porto og Flamengo hafa verið orðuð við Hulk, sem á 48 leiki að baki fyrir brasilíska landsliðið og 11 mörk.

Hjá Shanghai spilaði Hulk 135 leiki á fjórum árum og skoraði 74 mörk. Hann gerði garðinn frægan með Porto þar sem hann skoraði 77 mörk í 169 leikjum áður en hann hélt til Zenit.
Athugasemdir
banner
banner