Mest lesnu fréttir ársins á Fótbolta.net

Ísland fagnar marki gegn Englandi. Einkunnagjöf Fótbolta.net fyrir þann leik var vinsælasta frétt ársins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Giroud hrósaði íslenska liðinu og Raggi Sig var orðaður við ensk stórlið áður en Fulham keypti hann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Abel Dhaira lést í mars.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenskir stuðningsmenn fjölmenntu til Frakklands og stóðu þétt við bakið á íslenska landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kári Árnason svaraði ummælum Cristiano Ronaldo. Hér eru þeir í baráttunni í leik Íslands og Portúgal.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Félagaskipti Paul Pogba til Manchester United vöktu gríðarlega athygli. Pogba kemur við sögu í sex fréttum á topp hundrað listanum.

Mynd: Getty Images

Dramatíski sigurinn á Austurríki kemur við sögu í topp 100.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jose Mourinho er til umfjöllunar í nokkrum fréttum á topp listanum.

Mynd: Getty Images

Rut Kristjánsdóttir leikmaður Fylkis fór beint í tannlæknastólinn hjá Heimi Hallgrímssyni landsliðsþjálfara eftir að tönn brotnaði í leik gegn ÍBV.

Mynd: Einkasafn

Margir voru svekktir að sjá íslenska landsliðið ekki í FIFA 17.

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Ísland fagnar marki gegn Englandi. Einkunnagjöf Fótbolta.net fyrir þann leik var vinsælasta frétt ársins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lesendur Fótbolta.net voru duglegir að lesa fréttir tengdar íslenska landsliðinu eins og sést á lista yfir vinsælustu fréttir ársins. Mjög margar af mest lesnu fréttum ársins tengjast landsliðinu á einn eða annan hátt.
Enski boltinn var vinsæll hjá lesendum líkt og áður og koma Jose Mourinho, Paul Pogba og Zlatan Ibrahimovic til Manchester United vakti mikla athygli.
- Einkunnir Íslands gegn Englandi: Fjórir fá 10! (mán 27. jún 20:52) EM æðið á Íslandi náði hápunkti eftir 2-1 sigur á Englandi í 16-liða úrslitunum. Sigurinn var svo sannarlega sanngjarn og einkunnagjöf Fótbolta.net hefur líklega aldrei verið hærri. Ragnar Sigurðsson, Birkir Bjarnason, Aron Einar Gunnarsson og Kolbeinn Sigþórsson fengu allir tíu i einkunn. Ragnar var valinn maður leiksins eftir magnaða frammistöðu sína. Þessi frétt er sú mest lesna í sögu Fótbolta.net!
- Giroud: Ég vil hrósa Íslandi mikið (sun 03. júl 21:22) Þátttöku Íslands á EM lauk gegn Frökkum á Stade de France í 8-liða úrslitunum. Olivier Giroud var maður leiksins en hann átti góðan dag og skoraði tvívegis. Hann hrósaði íslenska liðinu mikið eftir leikinn. „Ísland gafst ekki upp. Þeir eru öflugt lið með mikinn vilja og þeir héldu áfram allt til loka. Ég vil hrósa þeim mikið. Þeir stóðu sig frábærlega á EM,\" sagði Giroud.
- Abel Dhaira látinn (sun 27. mar 14:20) Abel Dhaira, markvörður ÍBV, lét lífið í lok mars eftir baráttu við krabbamein. Abel greindist með krabbamein í lok árs 2015. Eftir að veikindin komu í ljós ákvað ÍBV að koma Abel til Íslands og undir læknishendur hér á landi. ÍBV setti einnig af stað fjársöfnun til styrktar Abel og er óhætt að segja að íslenska knattspyrnusamfélagið hafi staðið við bakið á Abel en fjölmörg lið létu sektarsjóð sinn renna til Abel svo fátt eitt sé nefnt. Í mars fór einnig fram sérstakur styrktarleikur fyrir Abel þar sem úrvalslið ÍBV og úrvalslið Pepsi-deilarinnar mættust. Abel lék 72 leiki með ÍBV í deild og bikar á árunum 2011-2015 en hann lék einnig 11 A-landsleiki fyrir Úganda.
- Völdu Ísland sem óvæntustu stjörnurnar á EM (þri 05. júl 20:03) Íslenska landsliðið sló í gegn á EM og fékk mikið hrós fyrir frammstöðu sína víðsvegar um heiminn. Copa 90 gerði topp tíu lista yfir óvæntustu stjörnunar á EM. Þar sat íslenska landsliðið á toppnum eftir magnaða frammistöðu í Frakklandi.
- Mynd: Svakaleg gæsla kringum Ungverja - Engin hjá Tólfunni (lau 18. jún 16:23) Ungverskir stuðningsmenn voru með ólæti fyrir leikinn gegn Íslandi í Marseille en það varð til þess að loka þurfti hluta af vellinum og sumir íslenskir stuðningsmenn komust ekki inn á leikvanginn fyrr en leikurinn var byrjaður. Svakaleg gæsla var í kringum ungversku stuðningsmennina eins og sjá mátti á mynd í meðfylgjandi frétt. Fyrir framan ungversku stúkuna röðuðu fjölmargir úr sérsveit frönsku lögreglunnar sér upp. Á sama tíma var gæslan í algjöru lágmarki hjá íslensku stuðningsmönnunum. Ungversku áhorfendurnir létu áfram ófriðlega en þeir hentu blysum inn á völlinn þegar jöfnunarmark þeirra kom undir lok leiks.
- Liverpool, Leicester og Tottenham vilja fá Ragga Sig (mið 29. jún 08:35) Ragnar Sigurðsson vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína á EM en hann var meðal annars valinn í lið mótsins hjá nokkrum erlendum aðilum. Eftir leikinn gegn Englendingum greindi The Guardian frá því að Tottenham, Leicester og Liverpool hefðu öll áhuga á Ragnari sem og þýsku félögin Schalke og Wolfsburg. Á endanum fór það hins vegar svo að Fulham keypti Ragnar í sínar raðir frá Krasnodar í Rússlandi.
- Fleiri miðar til sölu fyrir Íslendinga í dag (þri 28. jún 12:54) Einungis 1000 miðar voru í boði fyrir Íslendinga í almennri miðasölu fyrir leikinn við Frakka í 8-liða úrslitum. Vonbrigðin voru mikil en þau minnkuðu þegar það bárust fregnir af því að þeir Íslendingar sem höfðu áður keypt miða á leik á EM myndu fá tækifæri á að kaupa miða á leikinn á Stade de France. Á endanum kræktu 10 þúsund Íslendingar í miða á leikinn við Frakka.
- Messi dæmdur í tæplega tveggja ára fangelsi (mið 06. júl 11:02) Lionel Messi, leikmaður Barcelona, var í júlí dæmdur í 21 mánaða fangelsi á Spáni fyrir skattsvik. Dómar sem er undir tveimur árum eru skilorðsbundnir á Spáni og því hefur Messi ekki þurft að fara inn í fangelsi ennþá.
- Ummæli Kára vekja athygli - Lét Ronaldo heyra það (mið 15. jún 12:06) „Þeir fögnuðu eins og þeir hefðu unnið Evrópumótið. Það er hugsunarháttur þess litla. Þess vegna munu þeir aldrei vinna neitt,\" sagði Cristiano Ronaldo eftir 1-1 jafntefli Íslands og Portúgals. Kári Árnason tjáði sig um ummæli Ronaldo eftir leik. „Það gerir þetta bara sætara þegar hann er svona tapsár. Hann getur sagt allt sem hann vill. Hann fékk varla almennilegt færi í leiknum. Hann fékk eitt og gat ekki klárað það. Hann tekur tapinu illa, Tough s**t,\" sagði Kári.
- KSÍ hafnaði tilboði um að hafa Ísland í FIFA 17 (þri 20. sep 11:13) Mikil reiði braust út á meðal FIFA spilara á Íslandi eftir að greint var frá því að KSÍ hefði hafnað tilboði EA Sports um að hafa íslenska landsliðið með í FIFA 17. EA Sports óskaði eftir því að hafa íslenska landsliðið með í leiknum í fyrsta skipti í mörg ár. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, sagði að EA Sports hefði boðið eina milljón króna fyrir réttinn en það hefði KSÍ ekki viljað sætta sig við.
- Leið yfir Ara í klefanum - Aron mjög áhyggjufullur í viðtali (mán 05. sep 21:08)
- Drogba: Eiður þú ert klikkaður (sun 23. okt 22:19)
- Raggi Sig í Fulham (þri 23. ágú 15:32)
- Ógeðslegur gjörningur hjá stuðningsmönnum Celtic (mán 12. sep 16:11)
- Zlatan setti met í læknisskoðuninni hjá Man Utd (lau 02. júl 11:44)
- „Ísland með bestu stuðningsmennina - Lagerback besti þjálfarinn\" (þri 14. jún 23:12)
- Gæsahúðarmyndband - EM 2016 er lokið (sun 10. júl 23:15)
- 110 milljón evra boð United í Pogba samþykkt (mið 20. júl 20:45)
- Þetta eru bestu leikmenn Íslands samkvæmt Sky Sports (fim 23. jún 09:30)
- Mourinho setti Mata inn og tók hann aftur af velli (sun 07. ágú 17:43)
- Mourinho henti níu leikmönnum úr aðalliðinu (fim 28. júl 17:00)
- Jón Daði til Wolves (Staðfest) (þri 02. ágú 12:29)
- Paul Pogba til Manchester United (Staðfest) (mán 08. ágú 23:45)
- Skylduáhorf: Fjölskyldur og vinir sendu landsliðinu skemmtilegar kveðjur (þri 07. jún 11:35)
- Kassavæðing knattspyrnunnar (fös 04. mar 10:00)
- Myndband: Stúkan titraði þegar Íslendingur sungu fyrir leik (mið 15. jún 10:21)
- Dele Alli talar ekki við fjölskyldu sína (sun 11. sep 12:03)
- Enn hægt að fá miða á Ísland - England (fös 24. jún 10:16)
- Besta spurning fréttamanns á EM komin (mán 20. jún 22:21)
- Mourinho skammaði Conte eftir leik: Þetta var niðurlægjandi (sun 23. okt 17:50)
- Einkunnir Íslands gegn Austurríki: Þrír fá níu (mið 22. jún 17:56)
- Danny Murphy: Er búinn á því andlega eftir leiki Íslands (sun 19. jún 20:00)
- Hafþór Júlíus hræðir Ronaldo fyrir leikinn gegn Íslandi (mán 06. jún 10:05)
- EM-hópurinn: Eiður með - Margir ungir (mán 09. maí 14:01)
- Evra: Hættið að gera ráð fyrir að England vinni Ísland (mán 27. jún 10:20)
- Ísland frysti Ronaldo - Hvað segja erlendir fjölmiðlar? (þri 14. jún 22:32)
- Bara einn leikur beint í enska á laugardögum klukkan 14 (þri 19. júl 14:49)
- Myndband: Nýtt sjónarhorn af sigurmarki Íslands (fös 07. okt 08:53)
- Sky Sports: Zlatan að skrifa undir hjá Man Utd (fös 03. jún 21:09)
- Eiður Smári býðst til að spila með Chapecoense (sun 04. des 22:15)
- Munurinn á því hvernig tekið var á móti Íslandi og Englandi (mán 04. júl 21:10)
- Man Utd sendir frá sér yfirlýsingu vegna Pogba (sun 07. ágú 14:06)
- Misheppnuð hráka Jóns Daða trendar á netinu (lau 18. jún 17:14)
- Bestu leikmenn heims fæddir 1999 - Kolbeinn á lista (mið 05. okt 10:11)
- Giggs brjálaðist þegar Ronaldo fékk sér gos með morgunmatnum (sun 31. júl 21:30)
- Níu feitustu leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi (mán 14. nóv 17:30)
- Mourinho brjálaður - Leikmennirnir pöntuðu hárgreiðslumann (sun 13. nóv 14:30)
- Jose Mourinho: Ég hef aldrei séð annað eins (lau 16. júl 20:20)
- Skilaboð til Arons Einars (fim 30. jún 14:26)
- Íslenskur slúðurpakki #1 (sun 02. okt 20:00)
- Steve McClaren miður sín - Sjáðu viðbrögðin við marki Kolla (mán 27. jún 19:32)
- Viðar Örn: Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið í lífinu (þri 30. ágú 09:30)
- Stóri Sam stunginn í bakið af vini sínum til 30 ára (mið 28. sep 09:50)
- Rooney lét Gylfa finna fyrir því (mið 29. jún 19:02)
- Bréf til allra knattspyrnuáhugamanna (fim 25. ágú 17:30)
- Hvernig líta möguleikar Íslands út fyrir lokaumferðina? (lau 18. jún 21:56)
- Ensku treyjurnar - Frá þeirri verstu í þá flottustu (þri 26. júl 16:30)
- Gummi Ben vekur heimsathygli - „Spangólar á tunglið\" (mið 22. jún 20:24)
- Spilaði yfir 300 leiki fyrir Arsenal - Er róni í dag (mið 13. apr 22:23)
- Þeir ellefu verstu sem hafa spilað í Liverpool - Man Utd (mán 17. okt 10:45)
- Ísland kemst áfram með jafntefli ef England vinnur (sun 19. jún 22:38)
- Af hverju æfa leikmenn á Englandi í sérstökum vestum? (fim 28. júl 12:30)
- Mynd: Leikmaður Middlesbrough fagnaði með punginn úti (sun 21. ágú 16:15)
- Owen orðlaus - Schmeichel ekki séð annað eins (mán 27. jún 20:59)
- Liverpool að kaupa rangan Ragnar í vörnina (sun 17. júl 21:42)
- Sjáðu markið: Mark ársins skorað á Akureyri? (fös 12. ágú 00:25)
- Mourinho reiður út í Schweinsteiger (mið 31. ágú 08:45)
- Rut Kristjáns fór beint í stólinn hjá Heimi Hallgríms (mið 10. ágú 08:15)
- Af hverju var þetta mark dæmt af? (mið 17. ágú 23:22)
- Horfðu á Íslenska drauminn (lau 15. okt 20:00)
- Þjálfari Portúgala ósáttur með ummæli Lars (fim 16. jún 10:46)
- Íslenska landsliðið ekki í FIFA 17 (sun 18. sep 11:05)
- Hvernig lítur framtíðin út hjá Íslandi? - Liðið eftir tíu ár (fös 05. ágú 15:15)
- Ronaldo og Messi langt á eftir launahæsta leikmanni heims (mið 07. des 11:00)
- Jón Ragnar hættur hjá FH (Staðfest) (sun 20. mar 20:03)
- Sjáðu markið: Jón Daði með flott mark fyrir Wolves (lau 06. ágú 18:24)
- Einkunnir Íslands: Þrír fá 9 frá TG9 (sun 09. okt 20:37)
- United selur átta leikmenn til að hafa efni á Pogba (sun 10. júl 12:00)
- Af hverju er Pogba í banni gegn Bournemouth? (fös 12. ágú 12:08)
- Sakho féll á lyfjaprófi (lau 23. apr 12:32)
- Óli Jó pirraður: Væri mest spennandi ef þú færir! (sun 24. júl 21:45)
- Jói Berg á leið í úrvalsdeildina - Tilboð Burnley samþykkt (mið 13. júl 16:32)
- Landsliðsstelpur hlægja að furðulegri \"frétt\" (mán 04. júl 22:26)
- Sjáðu nýja búninginn hjá Norwich - Alveg eins og hjá Íslandi (fös 15. júl 19:40)
- Ísland í sjöunda sæti yfir bestu lið Evrópu (mið 29. jún 12:40)
- Ronaldo: Ísland mun aldrei vinna neitt (þri 14. jún 22:24)
- „Peningum hent á bálið\" (mið 17. ágú 11:26)
- Endar Zlatan á óvæntum stað? (lau 28. maí 10:15)
- Myndir: Kolbeinn er konungur háloftanna (lau 18. jún 20:43)
- Ronaldo vann Ballon d\'Or (Staðfest) - Sjáðu topplistann (mán 12. des 19:05)
- Hannes kominn í rosalegt form - Aron skýtur á hann (mið 09. mar 11:53)
- Myndband: Teiknimynd um Ísland gegn Ronaldo (mið 15. jún 20:41)
- Kolbeinn betri en Hazard, Bale og Ronaldo (lau 09. júl 19:30)
- Hvað er í gangi með liðsmyndir Wales? (mán 10. okt 10:23)
- Uppselt á Frakkaleikinn - Íslendingar sitja svekktir eftir (þri 28. jún 12:31)
- Fótboltamót fyrir krakka - Skoðaðu verðið (sun 27. nóv 14:34)
- Höddi Magg: Grein Kjarnans er svo mikið drasl (mið 20. júl 11:56)
- Þetta er öskrandi stuðningsmaður Íslands í Zagreb (lau 12. nóv 18:08)
- Van Gaal rekinn frá Manchester United (mán 23. maí 11:17)
- Hávær kynlífshljóð í Pogba héldu fólki vakandi (þri 18. okt 10:29)

Giroud hrósaði íslenska liðinu og Raggi Sig var orðaður við ensk stórlið áður en Fulham keypti hann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Abel Dhaira lést í mars.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenskir stuðningsmenn fjölmenntu til Frakklands og stóðu þétt við bakið á íslenska landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kári Árnason svaraði ummælum Cristiano Ronaldo. Hér eru þeir í baráttunni í leik Íslands og Portúgal.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Félagaskipti Paul Pogba til Manchester United vöktu gríðarlega athygli. Pogba kemur við sögu í sex fréttum á topp hundrað listanum.

Mynd: Getty Images

Dramatíski sigurinn á Austurríki kemur við sögu í topp 100.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jose Mourinho er til umfjöllunar í nokkrum fréttum á topp listanum.

Mynd: Getty Images

Rut Kristjánsdóttir leikmaður Fylkis fór beint í tannlæknastólinn hjá Heimi Hallgrímssyni landsliðsþjálfara eftir að tönn brotnaði í leik gegn ÍBV.

Mynd: Einkasafn

Margir voru svekktir að sjá íslenska landsliðið ekki í FIFA 17.

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
