30.12.16 - 10:30
Hafliði Breiðfjörð
Baldur Bett og Benedikt Egill í KFG (Staðfest)

Frá samningum við leikmennina.

Mynd: KFG

Frá samningum við leikmennina.

Mynd: KFG
KFG hefur samið við tvo reynslumikla leikmenn fyrir baráttuna í 3. deildinni næsta sumar. Baldur Bett og Benedikt Egill Árnason hafa báðir ákveðið að taka fram skóna og spila með liðinu næsta sumar.
Baldur Bett er gríðarlega öflugur miðjumaður sem hefur engu gleymt þrátt fyrir að hafa ekki spilað síðan 2012 en hann á að baki tæplega 200 leiki í efstu deild. Baldur spilaði með FH á árinum 2000-2006 og varð Íslandsmeistari með þeim árin 2004-6 en þá skipti hann yfir til Vals og varð hann Íslandsmeistari með þeim árið 2007.
Benedikt Egill er ekki síður reynslumikill en hann hefur spilað tæplega 100 leiki í 1. og úrvalsdeild með FH og Stjörnunni. Benedikt skoraði meðal annars eftirminnilegt mark fram hjá Pepe Reina þegar FH náði jafntefli við Villareal í Intertoto keppninni árið 2002. Benedikt er gamalreyndur miðvörður sem mun styrkja varnarleik liðsins mikið næsta sumar.
„Félagið er mjög ánægt með að hafa fengið þessa reynslubolta til að snúa aftur og spila með félaginu en hryggjasúla liðsins næsta sumar verður skipuð reynslumiklum leikmönnum því í framlínunni verður Garðar Jóhannsson sem samdi við félagið fyrr í haust. Það er frábært að hafa svona eldri leikmenn í liðinu í bland við þá ungu leikmenn sem fyrir eru og mun það hjálpa okkur mikið í bráttunni í næsta sumar,\" segir í tilkynningu KFG.
„Félagið gefur gríðarlegan metnað til að ná langt í sumar og er markmiðið að komast upp um deild og spila í 2. deild að ári.\"