Fotbolti.net
30.12.16 - 12:26
Hafliði Breiðfjörð

FH semur við bandarískan kantmann (Staðfest)

Murray í leik í finnsku deildinni.

Murray í leik í finnsku deildinni.

Canon

Mynd: FH

Kvennaboltinn
Meistaraflokki kvenna hjá FH barst liðsstyrkur í dag þegar Caroline Murray skrifaði undir samning við félagið um að leika með liðinu næsta sumar.

Caroline spilaði með liði í efstu deild Finnlands á síðasta leiktímabili. Caroline er fædd 1993 og hefur aðallega leikið á vinstri eða hægri kanti með liðum sínum.
Orri Þórðarson, þjálfari FH liðsins er ánægður með komu nýja leikmannsins. „Þetta er stelpa sem getur spilað á báðum köntunum, er fljót og óhrædd við að taka leikmenn á. Við bindum miklar vonir við að hún komi til með styrkja liðið verulega næsta sumar enda verður baráttan mjög hörð,“ sagði Orri Þórðarson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá FH í tilkynningu frá félaginu.

FH liðið ætlar ekki að láta staðar numið við þetta og hefur í hyggju að styrkja hópinn enn frekar fyrir næsta keppnistímabil.

„Við ætlum okkur að halda áfram að styrkja liðið fyrir næsta sumar. Við munum sækja 2-3 sterka leikmenn í viðbót. Liðið okkar er mjög ungt að árum og hefur ekki mikla reynslu en það sýndi og sannaði síðasta sumar að það getur gert góða hluti. Það er því ætlunin að byggja upp á þessum grunni og halda áfram að styrkja og efla liðið“, sagði Orri.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.