Fotbolti.net
30.12.16 - 18:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Guðmundur Steinn í Víking Ó. (Staðfest)

Guðmundur Steinn undirritar hér samning við Víking Ó..

Guðmundur Steinn undirritar hér samning við Víking Ó..

Canon

Mynd: Víkingur Ó.

Knattspyrnudeild Víkings Ó og Guðmundur Steinn Hafsteinsson hafa undirritað samning út keppnistímabilið 2017. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ólafsvíkingum.

Guðmundur Steinn var síðast á mála hjá ÍBV, en hann rifti samningi sínum þar í síðasta mánuði. Hann lék aðeins tvo leiki með ÍBV í deild og bikar á síðasta tímabili vegna meiðsla.
Nú er hann kominn í nýtt lið, en hann ákvað að semja við sína gömlu félaga í Víkingi Ó.. Hann lék með liðinu frá 2011 til 2013 við góðan orðstír.

Guðmundur er uppalinn í Val, en hann fór svo til Víkings Ó. þar sem hann lék 79 leiki og skoraði 35 mörk.

Hann hefur einnig leikið með HK, Fram og Notodden í Noregi á ferli sínum.

Hann samdi eins og áður segir við Víkinga út næsta tímabil, en síðastliðið sumar lentu Ólafsvíkingar í tíunda sæti Pepsi-deildarinnar, tveimur stigum frá fallsæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.