31.01.17 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Akpom lánaður til Brighton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Chuba Akpom er búinn að skrifa undir hálfs árs samning við Brighton sem er í toppbaráttu Championship deildarinnar.
Akpom, sem er 21 árs sóknarmaður Arsenal, var mikilvægur fyrir Hull á síðasta tímabili þar sem honum tókst að skora ellefu mörk og hjálpaði til við að tryggja sæti í ensku Úrvalsdeildinni.

Akpom hefur áður leikið fyrir Brentford, Coventry og Nottingham Forest sem lánsmaður í Championship deildinni og býr því yfir mikilli reynslu þrátt fyrir ungan aldur.
„Við erum hæstánægðir með að geta tilkynnt að okkur tókst að landa Akpom,\" sagði Chris Hughton, stjóri Brighton.
Brighton er á toppi deildarinnar með 60 stig eftir 27 umferðir. Newcastle kemur næst, tveimur stigum á eftir og svo er Reading átta stigum eftirá.