Fotbolti.net
31.01.17 - 16:59
Magnús Már Einarsson

Ashley Westwood til Burnley (Staðfest)

Ashley Westwood til Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Burnley

Burnley hefur keypt miðjumanninn Ashley Westwood frá Aston Villa á fimm milljónir punda.

Westwood skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Burnley.
Steve Bruce, stjóri Aston Villa, var tilbúinn að selja Westwood eftir að hann keypti Birki Bjarnason frá Basel í síðustu viku.

Hinn 26 ára gamli Westwood kom til Aston Villa frá Crewe árið 2012.

Hann er nú mættur í ensku úrvalsdeildina á ný og mun reyna að hjálpa Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum síðari hluta tímabils.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.