31.01.17 - 23:09
Ívan Guðjón Baldursson
Boro kaupir Guedioura af Watford (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Middlesbrough er búið að ganga frá kaupum á Adlene Guedioura frá Watford.
Guedioura er 31 árs gamall miðjumaður og skrifar undir samning til sumarsins 2019.
Guedioura er 31 árs gamall miðjumaður og skrifar undir samning til sumarsins 2019.
Guedioura á 32 landsleiki að baki fyrir Alsír og hefur leikið í enska boltanum undanfarin sjö ár, en hann kom til Wolves árið 2010 og hefur síðan þá spilað fyrir Nottingham Forest, Crystal Palace og Watford.
Middlesbrough er í fallbaráttunni eftir 23 umferðir og er reynslubolti eins og Guedioura eflaust góður liðsstyrkur.
Middlesbrough er í fallbaráttunni eftir 23 umferðir og er reynslubolti eins og Guedioura eflaust góður liðsstyrkur.
