31.01.17 - 23:01
Ívan Guðjón Baldursson
Brighton festir kaup á Murray (Staðfest)

Murray gerði 44 mörk í 112 deildarleikjum fyrir Crystal Palace frá 2011 til 2015.

Mynd: Getty Images

Brighton er á toppi Championship deildarinnar og er hægt að þakka markamaskínunni Glenn Murray fyrir gott gengi félagsins á tímabilinu.
Hinn 33 ára gamli Murray, sem hafði gert 53 mörk í 118 deildarleikjum fyrir Brighton frá 2008 til 2011, kom á láni frá Bournemouth í byrjun tímabils.

Murray fór til Bournemouth árið 2015 en tókst aðeins að gera 3 mörk í 19 leikjum þessa átján mánuði sem hann var hjá félaginu.
Murray var lánaður til Brighton síðasta sumar og er hann búinn að gera 15 mörk í 22 leikjum, sem gaf toppliðinu góða ástæðu til að ganga frá kaupunum. Kaupverðið hefur ekki verið uppgefið en er talið nema nokkrum milljónum punda.