31.01.17 - 13:02
Magnús Már Einarsson
Demba Ba til Besiktas (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Demba Ba, fyrrum framherji Chelsea, Newcastle og West Ham, hefur gengið til liðs við Besikas í Tyrklandi.
Hinn 31 árs gamli Ba spilaði með Besiktas tímabilið 2014/2015 en þaðan lá leið hans til Shanghai Shenhua.
Ba var duglegur að skora fyrir Shanghai Shenhua áður en hann fótbrotnaði á skelfilegan hátt í júlí í fyrra.

Ba er nú kominn af stað á nýjan leik en hann ætlar að leika með Besiktas út tímabilið.
Shanghai Shenhua var tilbúið að leyfa Ba að fara en félagið er meðal annars með framherjana Obafemi Martins og Carlos Tevez í sínum röðum.
Sjá einnig:
Skelfilegt fótbrot Demba Ba - Ekki fyrir viðkvæma