Fotbolti.net
31.01.17 - 20:54
Ívan Guðjón Baldursson

Emnes og Barrow lánaðir frá Swansea (Staðfest)

Modou Barrow fær að spila aftur undir stjórn Garry Monk.

Modou Barrow fær að spila aftur undir stjórn Garry Monk.

Canon

Mynd: Getty Images

Marvin Emnes og Modou Barrow, sem eiga saman um 100 leiki að baki fyrir Swansea, hafa báðir verið lánaðir út.

Barrow var lánaður til Leeds United út tímabilið þar sem hann gengur til liðs við sinn fyrrverandi knattspyrnustjóra, Garry Monk.
Emnes er hins vegar farinn til Blackburn, sem er óvænt í fallbaráttu Championship deildarinnar.

Svanirnir eru að reyna að lækka launakostnað hjá sér, en þeir þurfa að styrkja hópinn sinn fyrir komandi átök í úrvalsdeildinni enda í fallbaráttu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.