Fotbolti.net
31.01.17 - 23:27
Ívan Guðjón Baldursson

Lewis Grabban lánaður til Reading (Staðfest)

Lewis Grabban lánaður til Reading (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enski sóknarmaðurinn Lewis Grabban hefur verið lánaður til Reading út tímabilið.

Grabban er 29 ára gamall og gerði garðinn frægan hjá Bournemouth þar sem hann skoraði 35 mörk í 87 leikjum.
Norwich fékk hann í sínar raðir og fyrir ári síðan, í janúar 2016, keypti Bournemouth sóknarmanninn til baka á uppblásnu verði.

Grabban er búinn að spila 18 deildarleiki á þessum tíma án þess að skora eitt einasta mark og hefur nú verið lánaður til Reading þar sem hann á að finna taktinn til að vinna sjálfstraustið upp aftur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.