31.01.17 - 22:48
Ívan Guðjón Baldursson
Mamadou Sakho til Crystal Palace (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Crystal Palace fær franska miðvörðinn Mamadou Sakho á láni út tímabilið. Palace greiðir 2 milljónir fyrir lánið og ber fullan launakostnað.
Sakho var einn af betri mönnum Liverpool á síðasta tímabili og komst í náðir stuðningsmanna, en féll úr náðinni eftir rifrildi við Jürgen Klopp í æfingaferð félagsins í Bandaríkjunum.

Eftir rifrildið hefur Sakho ekki fengið sæti sitt í liðinu aftur og er nú búinn að skrifa undir samning við Crystal Palace.
Sakho á 28 landsleiki að baki fyrir Frakkland, en á ferlinum hefur hann leikið 151 deildarleik fyrir PSG og 56 deildarleiki fyrir Liverpool.
Ljóst er að Sakho er gríðarlegur liðsstyrkur fyrir Palace sem er í fallbaráttu.