31.01.17 - 11:51
Magnús Már Einarsson
Megan Dunnigan í FH (Staðfest)

Megan í leik með ÍA í fyrrasumar.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

FH hefur samið við Megan Dunnigan fyrir keppni í Pepsi-deild kvenna í sumar.
Megan hefur undanfarin tvö tímabil spilað með ÍA.

Síðasta sumar var hún markahæsti leikmaður liðsins í Pepsí deildinni með sex mörk en ÍA féll úr deildinni.
„Megan er gríðarlega fjölhæfur og öflugur leikmaður sem getur leyst flestar stöður á vellinum. Það er FH því mikið fagnaðarefni að hún skuli hafa ákveðið að ganga til liðs við félagið,\" segir á vef FH.
Áður hafa þær Lindsey Harris, markvörður, og Caroline Murray, kantmaður, skrifað undir samninga við FH um að spila með liðnu næsta sumar.

Megan Dunnigan gengur til liðs við FH mun spila með liðinu næsta sumar. Bjóðum hana velkomna í Kaplakrika #ViðerumFH #Fotboltinet pic.twitter.com/y78NLesN3I
— FHingar.net (@fhingar) January 31, 2017