Fotbolti.net
31.01.17 - 22:14
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Molla Wague til Leicester (Staðfest)

Molla Wague til Leicester (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Englandsmeistarar Leicester voru að bæta miðverði við leikmannahóp sinn rétt í þessu.

Það er landsliðsmaður Malí sem gengur til liðs við Claudio Ranieri og lærlinga hans.
Miðvörðurinn heitir Molla Wague og kemur á láni frá Udinese út tímabilið. Wague er 25 ára gamall og 191cm á hæð.

Leicester getur keypt Wague í sumar, en hann er í eigu Granada. Granada lánaði Wague til Udinese árið 2014 á sérstökum langtímalánssamning, sem gerir Udinese kleift að lána varnarmanninn áfram til annars liðs.

Wague hefur spilað 20 landsleiki fyrir Malí og 31 leik í ítölsku A-deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.