31.01.17 - 22:38
Ívan Guðjón Baldursson
N\'Diaye til Hull (Staðfest)

Alfred N\'Diaye í leik með Villarreal gegn Monaco í Meistaradeildinni.

Mynd: Getty Images

Senegalski miðjumaðurinn Alfred N\'Diaye verður á láni hjá Hull City út tímabilið.
Hull er að reyna að styrkja hópinn eins mikið og hægt er fyrir komandi átök í fallbaráttu ensku Úrvalsdeildarinnar.

N\'Diaye kemur frá Villarreal, þar sem hann hefur aðeins komið við sögu í sjö deildarleikjum á tímabilinu.
N\'Diaye spilaði 16 deildarleiki fyrir Sunderland tímabilið 2013-14 áður en hann var seldur til Real Betis þar sem hann varð strax að lykilmanni.
N\'Diaye verður 27 ára í mars og á 8 landsleiki að baki fyrir Senegal auk 25 landsleikja fyrir unglingalandslið Frakka.