Fotbolti.net
31.01.17 - 20:23
Þorsteinn Haukur Harðarson

Obertan samdi við Wigan (Staðfest)

Obertan samdi við Wigan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enska B-deildarliðið Wigan hefur samið við franska leikmanninn Gabriel Obertan.
Margir áhugamenn um enska boltann muna eflaust eftir því þegar Obertan var keyptur til Manchester United frá Bordeaux árið 2009.

Hann náði aldrei að sanna sig á Old Trafford og eftir tvö ár hjá félaginu var hann seldur til Newcastle þar sem hann spilaði í fimm ár, eða þar til hann fór til rússneska liðsins Anzhi Makhachkala í fyrra.

Nú er hann hinsvegar kominn í enska boltann á ný og mun spila með Wigan til loka leiktíðarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.