Fotbolti.net
31.01.17 - 19:48
Þorsteinn Haukur Harðarson

Oxford lánaður til Reading (Staðfest)

Reece Oxford klárar tímabilið hjá Reading

Reece Oxford klárar tímabilið hjá Reading

Canon

Mynd: Getty Images

West Ham hefur lánað varnarmanninn efnilega, Reece Oxford til Reading í Championship deildinni. Samningurinn gildir út tímabilið.
Oxford er einn efnilegasti leikmaður West Ham en hann varð á sínum tíma yngsti leikmaðurinn í sögu félagsins, þá 16 ára og 198 daga gamall.

Í dag er Oxford 18 ára gamall og hefur hann verið orðuð við nokkur stórlið. Hann ákvað hinsvegar að skrifa undir langtímasamning við West Ham fyrr í vetur.

Tækifærin hjá West Ham hafa verið af skornum skammti í vetur og mun hann því væntanlega ná í dýrmæta reynslu hjá Reading.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.