Fotbolti.net
31.01.17 - 10:54
Magnús Már Einarsson

Pato til Kína (Staðfest)

Pato til Kína (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski framherjinn Alexandre Pato hefur samið við Tianjin Quanjian í Kína.

Hinn 27 ára gamli Pato hefur leikið með Villarreal á þessu tímabili en hann hefur nú ákveðið að stökkva á peningana í Kína.

Fabio Cannavaro, fyrrum fyrirliði ítalska landsliðsins, þjálfar Tianjin Quanjian en félagið keypti á dögunum miðjumanninn Axel Witsel frá Zenit St. Pétursborg.
Pato lék á sínum tíma með AC Milan en á síðasta tímabili var hann í láni hjá Chelsea.

Pato virðist vera hæstánægður með félagaskiptin til Kína ef marka má myndina af honum og Cannavaro hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.