Fotbolti.net
31.01.17 - 18:17
Magnús Már Einarsson

Reece Oxford til Reading á láni (Staðfest)

Reece Oxford til Reading á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Reading hefur fengið varnarmanninn efnilega Reece Oxford á láni frá West Ham út tímabilið.

Oxford er einungis 18 ára en hann á þrátt fyrir það leiki að baki með aðalliði West Ham.
Oxford hefur verið undir smásjá hjá stærstu félögunum á Evrópu.

Hann fer nú til Reading á lán þar sem hann verður í góðum höndum hjá stjóranum Jaap Stam en hann var frábær varnarmaður á sínum tíma.

Reading fékk fyrr í dag miðjumanninn Jordon Mutch á láni frá Crystal Palace en liðið er í 3. sæti í ensku Championship deildinni og í harðri baráttu um að komast upp.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.